Um okkur

Saga Saumastofunnar Írisar

Eigendur Saumastofunnar Írisar ehf. eru Fjóla Jónsdóttir og Sólveig Róarsdóttir.
Saumastofan var stofnuð á Akureyri árið 1968 og var nafn hennar Íris fatagerð. Stofnendur hennar voru Jón Tryggvason, sem nú er látinn, og eiginkona hans Inga Skarphéðinsdóttir. Reksturinn var alla tíð í styrkum höndum þessara heiðurshjóna og fyrirtækið ávann sér traust og virðingu viðskiptavina sinna fyrir góða þjónustu.
Eftir lát Jóns, var fyrirtækið selt til Skagastrandar og tóku nýjir eigendur við því árið 2005.

Núverandi eigendur

Fjóla Jónsdóttir hefur áratuga reynslu í fataframleiðslu, hönnun og saumaskap hjá ýmsum fyrirtækjum. Segja má að fátt komi henni lengur á óvart, hún leysir einfaldlega fljótt og vel úr þeim verkefnum sem rata á hennar borð. Síminn hjá Fjólu er: 864 1371.

Sólveig Róarsdóttir er menntaður klæðskeri, rak lengi sitt eigið verkstæði sem nefndist Sveinninn og hefur einnig starfað hjá öðrum framleiðslufyrirtækjum í fataiðnaði. Sömu sögu er að segja með hana, þekking hennar og reynsla er einnig mikil.
Síminn hjá Sólveigu er: 898 2759.